20-02-2014 Leiðindar þræsingur hefur verið nánast , allan febrúar mánuð og rólegt í búskapnum. Hrossunum gefið á útigangi og ánum inni. Bókanir ganga vel fyrir sumarið, t.d. verða Íslendingar hér í nokkrar nætur og ríða út héðan, um víðan völl. Næsta sumar verður farið í hestaferð inn í Arnarfell hið mikla á Gnúpverjaafrétti , af því tilefni eru hér nokkrar vísur eftir Hrein Þorkels.
Frá Fossnesi flokkurinn töltir
og fákanna gleði er sönn.
fólkið í skinninu skröltir
að skjótast frá hverdagsins önn.
Agndofa augað sér víða
því útsýnið fer ekki dult.
Það er sólalaus brennivínsblíða
og brjóstið af hamingju fullt.
- Vorið rétt að koma..!! 14. March 2013
Það eru fyrstu merki vorsins hér í Fossnesi þegar álftin kemur fljúgandi upp með Þjórsánni,og það gerðist fyrir 2 dögum. Næst birtist þrösturinn, og hlýtur það , að fara að gerast..ekkert frost er í jörðu , og gat sú gamla skipt um hliðstaur niður á eyrum á Norlingafitinni, í febrúar….geri aðrir betur…!!
Nú frumsýnum við Saumastofuna á laugadaginn kl 16.00 í Árnesi
Continue reading → - Fréttir af okkur 26. February 2013
Landslagið breytist hratt þessa dagana, þvílíkir vatnavextir í Þjórsánni og hún lokar Þverána inni.Kolmórautt vatnið og illúðlegt.
Seinni rúningur á sauðfénu hefst nú um miðjan mars og ætlar Bjarni Arnar að rýja.
Hrossin hafa það gott á útiganginum, enda veðrið með eindæmum gott, engin tími hefur verið fyrir útreiðar, sökum æfinga á leikritinu Saumastofunni eftir Kjartan Ragnarson en hún verður frumsýnd 16. mars í Árnesi.
Eitthvað er til enn af góðu sauðaketi frá Sauðakofanum en lambakjötið er búið.
Continue reading →