Sauðakofinn framleiðir reykt sauðakjöt og fl. gott úr reykhúsinu. Sauðakjöt er kjöt af veturgömlum kindum sem hafa verið fóðraðar í einn vetur og hrútarnir geldir. Kjötið er sérlega bragðmikið og þykir herramannsmatur. Einnig er tekið kjöt í reyk frá fólki.
Það sem Sauðakofinn býður upp á er:
Tvíreykt sauðalæri (hrátt kjöt). Verð: 4.000 kr/kg.
Reyktir frampartar með beini. Verð: 3.000 kr/kg.
Hangirúlla frampartur. Verð: 3.600 kr/kg.
Tvíreyktir sauðahryggir (hrátt kjöt). Verð 7.500 kr/kg, eru seldir í c.a. 300 gr. umbúðum.
Sendu okkur pöntun í síma 486-6079/895-8079. og netfang sigrunfossnes@gmail.com